Snjóframleiðslukerfið vígt
Laugardaginn
17. desember sl. fór fram vígsla á snjóframleiðslukerfinu í Hlíðarfjalli. Þórarinn
B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, hélt þar tölu og
afhenti svo Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra og Birni Snæbjörnssyni,
formanni íþrótta- og tómstundaráðs, kerfið.
Nokkrir punktar um snjóframleiðslukerfið:
Á árinu
hefur verið unnið hörðum höndum að uppsetningu snjóframleiðslukerfisins í
Hlíðarfjalli. Kerfið er að gerðinni Sufag og eru slík
kerfi í notkun víðsvegar í heiminum. Snjóframleiðslan byggir á að vatni er dælt
undir þrýstingi að snjóbyssum, sem síðan þeyta vatninu upp í loft þar sem það
kristallast og fellur til jarðar sem snjór. Til að hægt sé að framleiða snjó
þarf lofthiti að vera undir frostmarki þ.e. að lágmarki -1°c.
Vatnsöflun: Vatni úr lækjum er veitt í
uppistöðulón sem er um 18.000 m3
Dæluhús: Vatninu er dælt með tveimur
lágþrýstum dælum í gegn um vatnssíu sem hreinsar vatnið. Þaðan fer svo vatnið í
tvær öflugar háþrýstidælur sem geta dælt 4.800 lítrum á mínútu um lagnakerfið.
Lagnakerfið: Vatnslagnir verða um allt fjall
alls um 2600 metra. Búið er að setja upp um 30 tengistútar fyrir snjóbyssur þar
sem eru vatnskranar og rafmagnstenglar.
Snjóbyssur: Í fyrsta áfanganum voru keyptar sjö
byssur til framleiðslunnar en þær eru færðar á milli tengipunkta með
snjótroðara. Hver getur búið til snjó úr allt að 600 lítrum af vatni á mínútu.
Fleiri myndir frá vígslunni eru hér fyrir neðan
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|