Fréttir:
Fjarkinn formlega vígður
![]()
9. febrúar 2002:
Í dag, 9. febrúar 2002, var nýja stólalyftan
í Hlíðarfjalli formlega vígð að viðstöddum mörgum góðum gestum, m.a.
Birni Bjarnasyni, menntamálaráðherra. Lyftunni var við þetta tækifæri
gefið nafnið Fjarkinn en efnt var til samkeppni um nafn á þetta glæsilega
mannvirki.
Fjarkinn er langfullkomnasta og um leið afkastamesta lyfta hér
á landi. Hver stóll er með fjórum sætum og getur lyftan flutt um 2.000
manns á klukkustund.Til samanburðar flutti gamla stólalyftan í
Hlíðarfjalli um 450 manns á klukkustund. Sú var orðin 35 ára gömul en
hún var á sínum tíma fyrsta stólalyfta landsins. Fullyrða má að með
tilkomu nýju lyftunnar er ekki stigið minna skref en þegar gamla lyftan var
tekin í gagnið, slík er breytingin. „Lyftan mun hafa gríðarlega mikið að
segja þegar til framtíðar er litið og mun hjálpa til við að tryggja Hlíðarfjalli
forystuhlutverk meðal skíðasvæða hérlendis. Þessi framkvæmd styrkir
Akureyri sem ferðamannastað yfir vetrartímann og eykur aðsókn í fjallið,“
segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða og framkvæmdastjóri
VMÍ.
Lyftan er frá Doppelmayr, líkt og gamla stólalyftan og
raunar aðrar lyftur í fjallinu. Hefur reynsla af þeim verið einstaklega
góð. Framkvæmdir við uppsetningu lyftunnar gengu gríðarvel. Byrjað var á
að taka gömlu lyftuna niður, jafnt stóla sem möstur og vinna
við undirstöður nýju lyftunnar hófst síðla sumars.
Síðasta mastur var reist í lok október og þann 20. desember afhenti
framleiðandinn Akureyrarbæ lyftuna. Snjórinn lét síðan aðeins bíða
eftir sér og því var beðið með formlega vígslu þar til nú.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við vígslu Fjarkans í dag.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.