Fréttir: Fjölmennt á opnum fundi um rekstur skíðasvæða
![]()
5. desember 2003:
Nýr snjótroðari afhentur í Hlíðarfjalli
Þann 5. desember var skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli við Akureyri afhentur nýr
snjótroðari af gerðinni Prinoth T4S. Nýi troðarinn er án efa fullkomnasti
snjótroðari landsins skiptir miklu máli fyrir rekstur skíðasvæðisins og þá
aðstöðu sem þar verður hægt að bjóða gestum upp á.
Hann er meðal annars búinn spili sem auðveldar alla vinnslu í brekkunum og gerir snjóflutning auðveldari. Spilið gerir það kleift að nota troðarann í miklum bratta og er þá notað til þess að halda troðaranum í brekkunni. Troðarinn er einnig búinn svokölluðum hálfpípufræsara til þess að útbúa stökkballa fyrir snjóbretta- og skíðafólk. Starfsfólk Hlíðarfjalls bindur miklar vonir við nýja tækið og þá möguleika sem opnast með því.
Það er Vélaver í Reykjavík sem flytur troðarann inn en framleiðandi er Leitner, ítalskt fyrirtæki sem framleiðir búnað fyrir skíðasvæði, svo sem lyftur, snjótroðara, snjóframleiðsluvélar og annan nauðsynlegan rekstrarbúnað á skíðasvæðum, sjá www.leitner-lifts.com og www.velaver.is Troðarinn er búinn 328 hestafla vél og er með 5,5 metra breiða tönn, 5,5 metra breiða snjómyllu og fjallaspili með 650 metra löngum vír.
Á
myndinni eru, taldir frá vinstri: Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður
skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, Jóhann G. Sigurðsson, formaður stjórnar
Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, Sigurjón P. Stefánsson, sölustjóri vinnuvéla
hjá Vélaveri, og Magnús Ingþórsson, framkvæmdastjóri Vélavers. (Smellið á
myndina til þess að sjá hana í stærri útgáfu.)