Fréttir: Hlíðarfjallsvegur endurnýjaður 
line_horz.gif (727 bytes)
28. ágúst 2002:
Nú styttist í að fyrri áfanga við endurnýjun vegarins að skíðasvæðinu 
í Hlíðarfjalli ljúki. Framkvæmdir hófust í júní og er áætlað að fyrri 
áfanga verksins ljúki um miðjan september. Í fyrri áfanga er vegurinn 
endurnýjaður frá skíðasvæðinu niður að rimlahliði.

Vegurinn liggur í sama stæði og áður en sveigjur hafa verið minnkaðar 
og vegurinn hækkaður upp þannig  að hann verður snjóléttari. Jafnframt 
endurnýjun vegarins er ráðgert að fjölga bílastæðum við Skíðahótelið.

Lengd vegarins er 4,8 kílómetrar og er áætlaður kostnaður við upp-
byggingu hans tæpar 70 milljónir króna. Síðari hluti verksins, það er 
frá rimlahliði og niður eftir, verður unninn næsta sumar. Vegurinn verður 
með bundnu slitlagi og því má með sanni segja að nú styttist í að 
ökumenn þurfi að koma við á þvottaplaninu eftir góðan dag í fjallinu.

Verktakafyrirtækið Klæðning úr Kópavogi sér um framkvæmdir 
við Hlíðarfjallsveg.