Fréttir: Samið um uppbyggingu VMÍ til ársins 2008
line_horz.gif (727 bytes)
18. mars 2003:
Undirritaður hefur verið samningur milli menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar um uppbyggingu og rekstur Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri fram til loka ársins 2008. 
   
Það voru þeir Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sem undirrituðu samninginn að viðstöddu fjölmiðlafólki og öðrum gestum í flugstöðvarbyggingunni á Akureyri í gær, mánudaginn 17. mars. Samningurinn felur í sér framlag upp á 360 milljónir króna til uppbyggingar á Akureyri.

Fjölbreytt verkefni framundan

Meðal helstu verkefna sem fyrirhugað er að ráðast í
á samningstímanum eru:

Jafnframt undirritun samningsins rituðu ráðherrann og bæjarstjórinn undir viljayfirlýsingu þess efnis að stefnt skuli að því að stofna vetraríþróttabraut við Verkmenntaskólann á Akureyri haustið 2003 sem tilraun til þriggja ára.

Viðurkenning á forystuhlutverki Akureyrar

Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur starfað á Akureyri í nákvæmlega átta ár því hún var stofnuð með staðfestingu samstarfs milli menntamálaráðuneytisins, Akureyrarbæjar, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar þann 18. mars 1995.
   
Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri VMÍ, er ánægður með samninginn og þá viðurkenningu á starfseminni sem í honum felst. “Þetta sýnir að mínu mati að Akureyrarbær er í forystuhlutverki á landsvísu í uppbyggingu vetraríþrótta. Samningurinn er viðurkenning ríkisvaldsins á þeirri staðreynd og mikil hvatning fyrir okkur til áframhaldandi uppbyggingar. Okkur er falið forystuhlutverk í vetraríþróttum á Íslandi og að sjálfsögðu ætlum við að standa okkur vel í því hlutverki, ekki aðeins Akureyringum til heilla heldur landsmönnum öllum. Þessi uppbygging kemur nefnilega mjög mörgum að góðu, jafnt keppnisfólki sem almenningi, jafnt heimamönnum á Akureyri sem gestum. Það eru spennandi tímar framundan við uppbyggingu aðstöðu til iðkunar vetraríþrótta hér á Akureyri,” segir Guðmundur Karl.