Fréttir:
Vakning í skíðagæslu og öryggismálum skíðasvæða
![]()
9. mars 2003:
Nýjar aðferðir við
eftirlit á skíðasvæðum hafa rutt sér til rúms hér á landi og dagana
6.-8. mars var haldið í Hlíðarfjalli þriggja daga námskeið í skíðagæslu
(Ski-Patrol) sem Björgunarskóli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Vetraríþróttamiðstöð
Íslands stóðu fyrir.
Námskeiðið
sóttu um tuttugu manns, bæði björgunarsveitamenn og starfsmenn skíðasvæða
á landinu, en kennarar voru tveir Bandaríkjamenn sem starfa á skíðavæðum
í Colorado í Bandaríkjunum. (Myndirnar með fréttinni eru fengnar hjá
Herði Má Harðarsyni, skólastjóra Björgunarskóla Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Mikið verk óunnið
Á námskeiðinu var skíðagæsla, eins og hún er tíðkuð víða um heim í
dag, kynnt fyrir nemendum,
fjallað um merkingar á skíðasvæðum, snjóöryggi,
björgun fólks í vanda, hjálmanotkun, notkun vélsleða á skíðasvæðum,
skýrslutökur við slys, björgun úr skíðalyftum, flutning slasaðra og
samvinnu milli skíðasvæða, björgunarsveita og stjórnenda vegamála, ásamt
ýmsu öðru sem viðkemur skíðagæslu almennt. Kennslan fór hvort tveggja
fram með fyrirlestrum og verklegum
æfingum. Meðal annars æfðu þátttakendur
sig við flutning slasaðra á sérstökum sleðum. Í því sambandi má benda
á þá staðreynd að
mun algengara er að þeir sem
slasast séu fluttir af skíðagæslumönnum
á skíðum og með sleða en að notuð séu
vélknúin farartæki á borð við
vélsleða.
Námskeiðið
þótti takast í alla staði mjög vel og eru þátttakendur og skipuleggjendur
sammála um að mikið verk er óunnið við skipulag og fræðslu í sambandi
við öryggisgæslu á skíðasvæðum hér á landi. Viðfangsefni námskeiðsins
nú hafi aðeins verið eins og inngangur að miklu stærra verkefni sem huga þurfi
að á næstu misserum.
Margar hugmyndir
í vinnslu
Ýmsar hugmyndir hafa komið upp í sambandi við áframhald á fræðslu og
kynningu á þessu sviði. Til dæmis er nú hafin undirbúningsvinna að ráðstefnu
með vinnuheitinu “Snjór, byggðir, samgöngur og afþreying”. Þá má
nefna skiptinemasambönd við skíðasvæði erlendis þannig að starfsfólk skíðasvæða
og björgunarsveitamenn eigi kost á að dvelja erlendis í starfsþjálfun.
Jafnframt eru uppi hugmyndir um að fá skíðagæslufólk erlendis frá til
starfa á skíðasvæðum hér á landi.
Óhætt
er að segja að mikil vakning sé að verða í þessum málum hér á landi og
er vilji til aukinnar og áframhaldandi samvinnu Landsbjargar, VMÍ og einstakra
skíðasvæða um fyrirbyggjandi fræðslu um öryggismál og gæslu í tengslum
við afþreyingu á snjó.
Breyttar áherslur
Undanfarna tvo vetur hefur sú nýjung verið reynd á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli
við Akureyri að menn frá Súlum björgunarsveit hafa séð um gæslu með
góðum
árangri.
Með þeirri
þróun sem orðið hefur á skíða- og brettaiðkun, það er með aukinni
notkun Carving- og Telemarkskíða og gríðarlegri aukningu á brettanotkun, sækir
fólk nú á stærra svæði en áður og á auðveldara með að fara ótroðnar
leiðir. Jafnframt fjölgar þeim hættum sem þarf að varast og til dæmis eru
meiri líkur á að fólk lendi í snjófljóði eða skriðu utan troðinna leiða
en á brautum. Þessi þróun kallar á breyttar áherslur í skíðagæslu og
eru námskeiðið og samstarf skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli við björgunarsveitarmenn
liður í að koma til móts við þær breyttu þarfir sem skapast hafa og þar
með að auka öryggi þeirra sem nota svæðið.
