Fréttir: Nýr íshefill í Skautahöllina á Akureyri
line_horz.gif (727 bytes)
20. nóvember 2003:
Nýr íshefill af gerðinni Zamboni hefur verið tekinn í notkun í Skautahöllinni á Akureyri. Miklar vonir eru bundnar við nýja hefilinn, hvort tveggja af skauta- og curlingfólki, þar sem hann er tæknilega mjög fullkominn og skilar betra svelli en sá gamli sem hann leysir af hólmi. Gamli hefillinn var af árgerð 1979 og var keyptur notaður hingað til lands frá Svíþjóð 1995. Hann var gasknúinn og mengaði því andrúmsloftið í Skautahöllinni en sá nýi er rafmagnsknúinn og því mun umhverfisvænni. Nýi hefillinn kostaði 10 milljónir króna og var kostaður með framlagi frá Vetraríþróttamiðstöðinni.

Á myndinni afhenda fulltrúi Zamboni, Hans-Peter Baldinger (í miðið), og formaður stjórnar VMÍ, Jóhann G. Sigurðsson (til hægri), Kristni Svanbergssyni, deildarstjóra íþrótta- og tómstundadeildar Akureyrarbæjar, nýja íshefilinn formlega. Afhendingin fór fram laugardaginn 15. nóvember. Myndinta tók Kristján Kristjánsson á Morgunblaðinu.