Fréttir VMÍ
line_horz.gif (727 bytes)

Fullkomnasta stólalyfta landsins kemur í Hlíðarfjall

Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað að gengið verði til viðræðna við fyrirtækið Doppelmayr um kaup á nýrri stólalyftu í Hlíðarfjall.

Öll fréttin

 

line_horz.gif (472 bytes)

 

Bygging Strýtu vel á veg komin

26. mars 2000:
Strýta tekin í notkun

Skoða nánar

line_horz.gif (472 bytes)

Bygging Skautahallar

26. mars 2000:
Byggingarsaga skautahallar
Hér getur þú skoðað í máli og myndum byggingu skautahallar á Akureyri.
Skoða nánar

23. apríl 1999
Opnuð voru tilboð í Skautahús við Naustaveg þann 23. apríl 1999. Eftirfarandi tilboð bárust:

Ístak h.f. 276.528.440.- kr.
SJS verktakar 192.942.792.- kr.
SJS verktakar, frávikstilboð 160.576.824.- kr.
Arnarfell ehf. 244.348.245.- kr.
Ármannsfell ehf. 268.175.707.- kr.

Tekið var lægsta tilboðinu sem var frávikstilboð SJS verktaka.
line_horz.gif (727 bytes)

22. júní 1999
Fyrsta skóflustunga að nýja skautahúsinu við Naustaveg á Akureyri var tekin 22. júní 1999.

Bæjarstjórinn á Akureyri Kristján Þór Júlíusson flutti ávarp en síðan tók hann og tveir af heiðursfélögum Skautafélags Akureyrar þeir Guðmundur Pétursson og Ingólfur Ármannsson fyrstu skóflustungurnar.
Að því loknu tók formaður Skautafélags Akureyrar, Magnús E. Finnsson til máls. Lét hann í ljós ánægju sína með þann áfanga sem nú hefði náðst í byggingarmálum skautahúss á Akureyri og óskaði verktökum alls góðs við byggingu þessa langþráða mannvirkis.

wpe6.jpg (9214 bytes)

Mynd: Fyrstu skóflustungurnar.
Fv. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, Guðmundur Pétursson
og Ingólfur Ármannsson heiðursfélagar Skautafélags Akureyrar.
Í baksýn: Eiríkur B. Björgvinsson íþrótta og tómstundafulltrúi Akureyrar og
Guðmundur Guðlaugsson yfirverkfræðingur Akureyrarbæjar

Áætlað er að húsið verði fullbúið í lok mars 2000 og lóð frágengin sumarið eftir.
Gert er ráð fyrir að húsið verði komið undir þak um miðjan oktober 1999 og í það komin loftræsing og lýsing og að þá verði hægt að taka svellið í notkun fyrir æfingar.

line_horz.gif (727 bytes)

15. júní 1999
Bygging nýrrar Strýtu í Hlíðarfjalli við Akureyri.

Við efri endastöð stólalyftu í Hlíðarfjalli er þjónustumiðstöð fyrir skíðafólk sem heitir Strýta. Hluti hennar hefur nú verið rifinn og í sumar á að byggja nýja Strýtu, kjallara og tvær hæðir. Í kjallara verður snyrtiaðstaða, spennistöð og geymslur. Á jarðhæð verður veitingaaðstaða, eldhús og rúmgóður salur og á efri hæð verður aðstaða fyrir tímatöku á skíðamótum, vinnu og fundaherbergi.

Nýja Strýta verður Rússneskt bjálkahús 120 fermetrar að grunnfleti.

Strax og snjóa leysir, svo hægt sé að fara með vinnuvélar á staðinn verður hafist handa við byggingu hússins. Kjallarinn verður steyptur og verður mikil vinna við að koma honum upp þar sem flytja þarf allt efni og steypu um grófan veg upp brattar brekkur frá Skíðahótelinu og upp í Strýtu. Bjálkahúsið kemur hingað til lands tilsniðið og gera má ráð fyrir að byrjað verði að reysa það seinnipartinn í september.

Áætlað er að húsið verði tilbúið um áramót 1999/2000

line_horz.gif (727 bytes)

28. júní 1999
Úttekt á brautum fyrir risasvig og brun í Hlíðarfjalli.

Þann 10. júní 1999 barst Skíðastöðum bréf frá Alþjóða skíðasambandinu ásamt skírteinum um fullgildingu skíðabrauta í Hlíðarfjalli fyrir risasvig (Super-G) og brun (Downhill).
Áður er búið að taka út skíðabrautir fyrir svig og stórsvig.
Úttektina í Hlíðarfjalli fyrir risasvig og brun annaðist Asle Bergström frá Noregi í febrúar 1998. Skírteinin eru undirrituð þann 28. maí 1999 af Walter Trilling hjá alþjóða skíðasambandinu í Sviss.

line_horz.gif (727 bytes)