29. október 2007

 

Snjóframleiðsla hafin í Hlíðarfjalli

Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli á Akureyri og er snjóframleiðslukerfið nú látið ganga allan sólarhringinn. Byggja þarf skíðabrekkurnar upp frá grunni þar sem lítið sem ekkert hefur snjóað á Akureyri í haust og því mun taka nokkra daga að gera þær klárar. Samkvæmt veðurspá verður kalt í veðri út þessa viku og ef það helst þannig má búast við að hægt verði að bregða sér á skíði eftir u.þ.b. 10 daga. Meðfylgjandi mynd var tekin úr einni af vefmyndavélum Hlíðarfjalls í morgun.

 

 

 

Frá Hlíðarfjalli 29. október 2007