Fréttir:

line_horz.gif (727 bytes)

5. febrúar 2008:
Opinn fundur um vetraríþróttir og útivist fyrir fatlaða fimmtudaginn 6. mars 2008 kl. 20.00

Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Beth Fox frá Winter Park, Colorado kynnir vetrar- og sumarstarfsemi hjá Winter Park en þar er boðið upp á fjölbreytt útivistartilboð fyrir fatlaða.

 

Námskeið ÍF og VMÍ í samstarfi við Winter Park, Colorado

Hlíðarfjalli, Akureyri 7. – 9. mars 2008

Skrá þarf þátttöku fyrir 3. mars 
Vetraríþróttamiðstöð Íslands    820-1658        hliðarfjall@hliðarfjall.is
Íþróttasamband Fatlaðra         514 4083/80    annak@isisport.is

Nánari upplýsingar gefa fulltrúar vetraríþróttanefndar ÍF:
Þröstur Guðjónsson                896 1147        sporri@internet.is
Svanur Ingvarsson                 893 2092        svanur@fsu.is

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

22. janúar 2008:
Snjótroðaranámskeið
Nýlega var haldið snjótroðaranámskeið í Hlíðarfjalli, en það voru Samtök skíðastaða á Íslandi ásamt VMÍ sem stóðu að því.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

6. desember 2007:
Hlíðarfjall opnar í dag
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli á Akureyri og er snjóframleiðslukerfið nú látið ganga allan sólarhringinn. Byggja þarf skíðabrekkurnar upp frá grunni þar sem lítið sem ekkert hefur snjóað á Akureyri í haust og því mun taka nokkra daga að gera þær klárar.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

29. október 2007:
Byrjað að framleiða snjó í Hlíðarfjalli
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli á Akureyri og er snjóframleiðslukerfið nú látið ganga allan sólarhringinn. Byggja þarf skíðabrekkurnar upp frá grunni þar sem lítið sem ekkert hefur snjóað á Akureyri í haust og því mun taka nokkra daga að gera þær klárar.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

29. október 2007:
Skrifstofur ÍSÍ, ÍBA og SKÍ opnaðar á Akureyri
Föstudaginn 19. október sl.var formlega opnuð einskonar íþróttamiðstöð að Glerárgötu 26 á Akureyri þar sem eru í nábýli skrifstofur Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) og Skíðasambands Íslands (SKÍ), en skrifstofurnar eru hlið við hlið á jarðhæð Glerárgötu 26.  

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

2. apríl 2007:
Skíðamót Íslands í Hlíðarfjalli 12. til 15. apríl 2007
Hér má finna auglýsingu um dagskrá Skíðamóts Íslands sem fram fer í Hlíðarfjalli 12 - 15 apríl nk. Mótið er jafnframt hluti af FIS móti í alpagreinum sem hefst þriðjudaginn 10. apríl í Hlíðarfjalli. 

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

26. mars 2007:
Saga Capital er nýr Vinur Hlíðarfjalls
Saga Capital hefur gengið til liðs við þau 12 íslensku fyrirtæki sem áður höfðu gert samstarfssamning við Akureyrarbæ um uppbyggingu og rekstur snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segist vera mjög ánægður með að fyrirtæki eins og Saga Capital, sem er að stíga sín fyrstu skref í íslensku atvinnulífi, skuli taka þátt í þessu metnaðarfulla verkefni sem geri fólki kleift að skemmta sér á síðum meirihluta vetrarins.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

19. janúar 2007:
Nýr snjótroðari afhentur í Hlíðarfjalli
Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur fest kaup á tveimur snjótroðurum, frá fyrirtækinu Kässbohrer AG, til notkunar á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Fyrri troðarinn, sem er af gerðinni PistenBully 300 Kandahar, var afhentur í dag en hinn, PistenBully 300 ParkBully, verður afhentur næsta haust.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

15. janúar 2007:
Fyrri troðarinn mættur á svæðið
Fyrri af tveimur snjótroðum sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur keypt til notkunar á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli kom til Akureyrar í síðustu viku. Hann bíður nú á geymslusvæði Landflutninga Samskips eftir að verða fluttur upp í Hlíðarfjall þar sem menn frá Kässbohrer AG og umboðsaðila þess á Íslandi munu gera hann tilbúinn til notkunar.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

5. janúar 2007:
Framkvæmdir sumarsins hafa nú þegar sannað sig
Í Hlíðarfjalli er nú ágætis skíðafæri í þeim brekkum sem nú eru opnar að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, staðarhaldara á svæðinu. Hann segir að snjóvélarnar hafi sannað sig, sérstaklega um og eftir þær miklu umhleypingar sem urðu rétt fyrir jól.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

14. desember 2006:
Tveir nýir snjótroðarar keyptir til notkunar í Hlíðarfjalli
Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur fest kaup á tveimur snjótroðurum, frá fyrirtækinu ssbohrer AG, til notkunar á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Fyrri troðarinn, sem er af gerðinni PistenBully 300 Kandahar, verður afhentur í janúar nk. en hinn, PistenBully 300 ParkBully, verður afhentur haustið 2007.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
21. nóvember 2006:
Mjög gott færi í Fjallinu á fyrsta degi
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað almenningi síðastliðinn laugardag, en undanfarnar vikur hefur keppnisfólk verið við æfingar upp í Strýtu. Færið var gott og veðrið frábært til skíða- og brettaiðkunar.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

18. október 2006:

Snjóframleiðsla komin í gang í Hlíðarfjalli
Þessa dagana er verið að búa til snjó efst í hlíðum Hlíðarfjalls en snjóframleiðslan hófst á mánudag og eru fjórar snjóvélar nýttar til þess líkt og í fyrra.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

6. október 2006:

Lónið tilbúið
Gerð uppistöðulóns fyrir snjóframleiðslukerfið í Hlíðarfjalli er nú lokið, lónið er tilbúið og fullt af vatni. Í botn uppistöðulónsins var sett götuð plastleiðsla.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

7. september 2006:

Snjógirðingar settar upp
Það var heldur drungalegt veður í göngubrautinni í Hlíðarfjalli þegar þessar myndir voru teknar í þriðjudaginn 5. september sl. Þoka og rigning af og til, en þeir létu það samt ekki á sig fá sjálfboðaliðarnir sem voru að vinna við að setja upp snjógirðingar við brautina. Búið er að leggja hátt í tvo kílómeter og fyrirhugað að bæta við meiru ef tíðin helst sæmileg.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

1. september 2006:

Fleiri myndir frá framkvæmdum í Hlíðarfjalli
Undanfarið hefur Hermann Sigtryggsson tekið margar myndir af framkvæmdum í Hlíðarfjalli og nokkrar þeirra eru komnar hér á heimasíðuna. Lokið er jarðvinnu vegna snjógerðarkerfisins svo að hægt verður að nota það með fullum afköstum í vetur. Myndirnar eru teknir á tímabilinu 18. til 29. ágúst sl.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

31. júlí 2006:

Myndir frá framkvæmdum í Hlíðarfjalli
Framkvæmdir í Hlíðarfjalli ganga vel. Nú er uppistöðulónið að taka á sig endanlega mynd og vinna við stækkun áhaldahússins er í fullum gangi. Í sumar hafa starfsmenn Skíðastaða unnið vélavinnu við að jafna og rétta af göngubrautir í Hlíðarfjalli, en síðan hafa sjálfboðaliðar frá Skíðafélagi Akureyrar unnið að því að hreinsa grjót úr brautunum fínjafna þær og síðan dreift í þær fræi og áburði.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

29. júní 2006:

Ýmis verkefni í gangi í Hlíðarfjalli
Í gær brá Hermann Sigtryggsson sér í Hlíðarfjall þar sem verið er að vinna að ýmsum verkefnum af fullum krafti. Nýbygging við áhaldahúsið er í smíðum, búið er að leggja veg að gönguhúsinu og þar er komið allstórt bílastæði. Þá er byrjað þar sem frá var horfið sl. haust við gerð uppistöðulóns fyrir snjógerðina o. fl

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

26. apríl 2006:

Endurmenntunarnámskeið á Akureyri
Endurmenntunarnámskeið fræðslunefndar SKÍ og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands verður haldið á Akureyri. Það hefst föstudagskvöldið 28. apríl og lýkur þriðjudaginn 2. maí nk. Námskeiðið hefur hlotið góðar viðtökur þar sem 15 aðilar frá 9 skíðafélögum hafa skráð sig.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

 

11. apríl 2006:

Lazer-hallamál á hefilinn
Skautahöllin á Akureyri hefur fest kaup á Lazer-hallamáli á íshefilinn sem notaður er á svellinu. Lazer-sendir er á austurvegg hallarinnar en nemar og stjórntæki, sem eru á sjálfum heflinum, sjá svo um að stilla hnífinn á heflinum ávallt í rétta hæð og tryggja þannig jafnþykkan ís á öllu svellinu.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)


16. mars 2006:

Vinir Hlíðarfjalls
Fulltrúar nokkurra fyrirtækja, sem kalla sig Vini Hlíðarfjalls, undirrituðu í gær samstarfssamning við Akureyrarbæ um að leggja fram um 20 milljónir króna til sjóframleiðslunnar í Hlíðarfjalli á næstu fimm árum.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

6. mars 2006:

Myndir frá námskeiði í vetraríþróttum fatlaðra
Í gær sunnudag  lauk námskeiði í vetraríþróttum fatlaðra, sem staðið hefur yfir á Akureyri undanfarna daga.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

20. febrúar 2006:

Námskeið og fyrirlestrar um vetraríþróttir fatlaðra
Dagana 27 febrúar til 5 mars verða haldin námskeið og fyrirlestrar í vetraríþróttum fatlaðra. Þessi námskeið eru á vegum ÍF og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, en hingað til lands munu koma fjórir sérmenntaðir skíðakennarar frá Bandaríkjunum.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

1. febrúar 2006:

Vel heppnuð ráðstefna um vetraríþróttir
Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) boðaði til ráðstefnu fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. janúar sl. á Hótel KEA á Akureyri. Fjöldi gesta mætti á ráðstefnuna og hlýddu á fjölmarga forvitnilega fyrirlestra sem þar voru haldnir.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

12. janúar 2006:

Ráðstefna um vetraríþróttir
Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) boðar til ráðstefnu 26. og 27. janúar 2006 á Hótel KEA á Akureyri. Boðið verður upp á veitingar. Ráðstefnugestum er jafnframt boðið á skíði að ráðstefnu lokinni, frá föstudegi til sunnudags.

Ráðstefnustjóri verður Viðar Sigurjónsson, starfsmaður ÍSÍ á Akureyri

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

19. desember 2005:

Snjóframleiðslukerfið vígt
Laugardaginn 17. desember sl. fór fram vígsla á snjóframleiðslukerfinu í Hlíðarfjalli. Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, hélt þar tölu og afhenti svo Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra og Birni Snæbjörnssyni, formanni íþrótta- og tómstundaráðs, kerfið.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
9. desember 2005:

Snjóframleiðslukerfið - vígslu frestað um viku
Sökum slæms veðurs og enn verri veðurspár fyrir laugardaginn 10.desember hefur verið ákveðið að fresta vígslu og á snjóframleiðslukerfinu í Hlíðarfjalli ásamt skíðadegi Skíðafélags Akureyrar og Útilífs.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
7. desember 2005:
Vígsla snjóframleiðslukerfisins í Hlíðarfjalli

Laugardaginn 10. desember nk. fer fram vígsla á snjóframleiðslukerfnu í Hlíðarfjalli. Athöfnin sem fer fram við Fjarkann hefst kl. 11:00 og mun Lúðrasveit Akureyrar leika jólalög. Opið verður í fjallinu milli kl 10.00 og 17.00 og hægt að fara frítt í allar lyftur þennan dag.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
2. desember 2005:
Snjóframleiðsla gengur vel
Þrjár snjóbyssur voru í gangi í Hlíðarfjalli í dag þegar tíðindamann heimasíðunnar bar að garði fyrr í dag. Tvær þeirra voru búnar að vera í gangi frá því kl. 18 í gær og var stærðarinnar snjóskafl fyrir fram þær.

Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
17. nóvember 2005:
Snjóframleiðsla í sól í Hlíðarfjalli
Í gær, miðvikudaginn 16. nóvember, hófst snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli, er fyrsta snjóbyssan var sett í gang og prufukeyrð. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, segir að allt hafi gengið samkvæmt áætlun og að allar sjö byssurnar verði komnar í gagnið strax í næstu viku.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
14. nóvember 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
7. nóvember 2005:
Fínt færi í fjallinu á fyrsta degi
Síðastliðinn laugardag opnaði skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli. Færið var gott og veðrið frábært til skíða- og brettaiðkunar. Fjölmargir skelltu sér á skíði, bæði á laugardeginum og einnig á sunnudeginum.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

3. nóvember 2005:
Hlíðarfjall opnar á laugardag
Vegna hagstæðra veðurskilyrða undanfarið þá er kominn nægur snjó í skíða og snjóbrettabrekkurnar í Hlíðarfjalli. Því verða lyftur opnaðar laugardaginn 5. nóvember nk. Fjarkinn veður opinn frá kl. 10-17, en aðrar lyftur verða síðan opnaðar eftir því sem aðstæður koma til með að breytast til hins betra. Fyrst um sinn verður Fjarkinn opinn laugardag og sunnudag. Áframhaldandi opnunartími ræðst síðan af aðstæðum.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
13. október 2005:
Skíðasvæðið verður opnað með allra fyrsta móti
Vetur konungur heilsar fyrr upp á landsmenn nú en nokkur síðustu ár. Um það ber snjóamagn víða um land merki og því var Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, inntur hann eftir stöðu mála við uppsetningu snjóframleiðslukerfisins.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)

4. október 2005:
Búið að opna göngubrautina í Hlíðarfjalli
Þann 29. september sl. var göngubrautin í Hlíðarfjalli opnuð. Töluvert hefur snjóað í fjallinu að undanförnu og hefur göngubrautin sjaldan eða aldrei verið opnuð jafn snemma og nú.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
4. október 2005:
Elstu menn muna ekki eftir öðru eins
Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni gengur uppsetning snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli ágætlega miðað við aðstæður. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, segir að jafnvel elstu menn muni ekki eftir jafn miklum snjó í fjallinu eins og var í september síðastliðnum.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
23. september 2005:
Vel gengur þrátt fyrir snjó!
Framkvæmdir við uppsetningu snjóframleiðslukerfisins hafa gengið vel þrátt fyrir eindæma lélegt veðurfar.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
19. september 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
16. september 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
13. september 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
9. september 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
29. ágúst 2005:
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna
Búið er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Það eina sem þarf að gera er að smella á hnappinn myndir hér til vinstri.
line_horz.gif (727 bytes)
29. ágúst 2005:
Framkvæmdir við uppsetningu snjóframleiðslukerfis ganga vel í Hlíðarfjalli
Þessa dagana er unnið hörðum höndum við að koma upp snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns Vetraríþróttamiðstöðvarinnar, ganga framkvæmdirnar mjög vel og að
nú þegar er búið að leggja um 1.100 metra af lögnum.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
11. ágúst 2005:
Skóflustunga tekin að snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli

Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, tók fyrstu skóflustunguna að nýju snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í hádeginu í dag.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
10. ágúst 2005:
Skíðaiðkun og útivera fyrir fatlaða

Skíðanámskeið fyrir fatlaða sem halda átti síðastliðið vor verður haldið í lok janúar 2006.
Öll fréttin
line_horz.gif (727 bytes)
7. júlí 2005:
Snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli

Undirbúningur að snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli er hafinn og er reiknað með að framkvæmdir geti hafist í kringum tíunda ágúst nk.
Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

15.
mars 2005:

Skíðaiðkun og útivera fyrir fatlaða
Sérstakt skíða- og útivistarnámskeið fyrir fatlaða verður haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri 14. til 17. apríl nk. Verkefnið er samstarfsverkefni Íþróttasambands Fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. 
Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)
5. desember 2003:
Nýr snjótroðari afhentur í Hlíðarfjalli

Þann 5. desember var skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli við Akureyri afhentur nýr snjótroðari af gerðinni Prinoth T4S. Nýi troðarinn er án efa fullkomnasti snjótroðari landsins skiptir miklu máli fyrir rekstur skíðasvæðisins og þá aðstöðu sem þar verður hægt að bjóða gestum upp á.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

20. nóvember 2003:

Nýr íshefill tekinn í notkun á Akureyri

Nýr íshefill af gerðinni Zamboni hefur verið tekinn í notkun í Skautahöllinni á Akureyri. Miklar vonir eru bundnar við nýja hefilinn, hvort tveggja af skauta- og curlingfólki...

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

Október 2003:

Fjölmennt á opnum fundi um rekstur skíðasvæða

Vetraríþróttamiðstöð Íslands stóð fyrir opnum fundi um skíðasvæði mánudaginn 6. október. Gestur fundarins var Tony Waddell, eigandi og framkvæmdastjóri Cataloochee Ski Area í Norður-Karolínu og stjórnarmaður í samtökum skíðasvæða í Bandaríkjunum

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

1. október 2003:

Opinn fundur um skíðasvæði

Næstkomandi mánudag, 6. október, heldur Vetraríþróttamiðstöð Íslands opinn fund um skíðasvæði. Framsöguerindi flytur Tony Waddell, eigandi og framkvæmdastjóri skíðasvæðis í Norður-Karolínu í Bandaríkjunum. Hann mun ræða um skíðasvæði í víðum skilningi, stöðu greinarinnar, skíðasvæði og ferðaþjónustu, iðkendur, skíði og snjóbretti, veður og snjóframleiðslu, svo eitthvað sé nefnt. Fundurinn verður á Hótel KEA mánudaginn 6. október kl. 16-18 og eru að sjálfsögðu allir velkomnir.

line_horz.gif (727 bytes)

18. mars 2003:

Samið um uppbyggingu VMÍ til ársins 2008

Undirritaður hefur verið samningur milli menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar um uppbyggingu og rekstur Vetraríþrótamiðstöðvar Íslands á Akureyri fram til ársins 2008. 

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

9. mars 2003:

Vakning í skíðagæslu og öryggismálum skíðasvæða 

Nýjar aðferðir við eftirlit á skíðasvæðum hafa rutt sér til rúms hér á landi og dagana 6.-8. mars var haldið í Hlíðarfjalli þriggja daga námskeið í skíðagæslu (Ski-Patrol) sem Björgunarskóli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Vetraríþróttamiðstöð Íslands stóðu fyrir.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

10. nóvember 2002:

Framkvæmdum lokið við bílastæðin.

Framkæmdum við bílastæði við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er lokið. Það var verktakafyrirtækið G. Hjálmarsson frá Akureyri sem vann verkið.

line_horz.gif (727 bytes)

1. Október 2002:

Ný bílastæði, framkvæmdir að hefjast

Ákveðið hefur verið að hefja framkvæmdir við bílastæði í Hlíðarfjalli. Áætlað er að hægt verði að leggja um 500 bílum á skipulögðum bílastæðum eftir framkvæmdirnar.

line_horz.gif (727 bytes)

28. ágúst 2002:

Hlíðarfjallsvegur endurnýjaður - fyrri áfanga brátt lokið

Nú Styttist í að ökumenn geti sleppt því að koma við á þvottaplönum bæjarins eftir góðan dag í fjallinu. 

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

22. apríl 2002:
Jeannie Thoren með fyrirlestur
Jeannie Thoren, sem sem nú er stödd er á Akureyri heldur fyrirlestur um líkamsbeitingu og skíðabútbúnað í kaffiteríunni í Íþróttahöllinni á Akureyri þriðjudaginn 23. apríl klukkan 20 á vegum Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands og Hlíðarfjalls. Fyrirlesturinn er opinn öllum.J eannie Thoren er sem kunnugt er einn þekktasti skíðakennari heims.

line_horz.gif (727 bytes)

8. apríl 2002:
Heimsþekktur skíðakennari heldur námskeið á Akureyri

Einn þekktasti skíðakennari heims, Jeannie Thoren, kemur til Akureyrar seinna í mánuðinum, nánar tiltekið dagana 19.-21. apríl, og heldur námskeið í Hlíðarfjalli.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

3. apríl 2002:
Skíðamót Íslands að hefjast
Skíðamót Íslands verður haldið á Dalvík og í Ólafsfirði um komandi helgi.
Heimasíða mótsins

line_horz.gif (727 bytes)

27. mars 2002:
Skíðaveisla á Akureyri um páskana
Það er boðið upp á sannkallaða veislu fyrir skíðafólk sem verður á Akureyri um páskana.
Skoða dagskrá

line_horz.gif (727 bytes)

9. febrúar 2002:
Fjarkinn formlega vígður
Í dag, 9. febrúar 2002, var nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli formlega vígð að viðstöddum mörgum góðum gestum, m.a. Birni Bjarnasyni, menntamálaráðherra.
Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

5. febrúar 2002:

Nýja stólalyftan vígð nk. laugardag

Næstkomandi laugardag, 9. febrúar, verður nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli formlega vígð og hefst athöfnin kl. 10.30 við lyftuna.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

24. janúar 2002:

Hátíðarstemmning í Hlíðarfjalli

Í gær var nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli opinn fyrir almenning í fyrsta sinn.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

21. desemberber 2001:

Nýja stólalyftan afhent

Í gær fékk Akureyrarbær afhenta nýju stólalyftuna í Hlíðarfjalli frá lyftuframleiðandanum, Doppelmayr í Austurríki.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

17. desemberber 2001:

Allir stólar komnir á sinn stað

Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli er nú nánast tilbúin. Fyrir helgina var lokið við að koma stólunum fyrir á vírnum og því má segja að aðeins séu stillingaratriði eftir.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

14. desemberber 2001:

Myndir frá námskeiði í Curling

Undanfarna viku hafa dvalið á Akureyri kanadísk hjón í þeim tilgangi að halda námskeið í Curling á vegum Skautafélags Akureyrar.

Öll fréttin

line_horz.gif (727 bytes)

4. desemberber 2001:

Mikil tilhlökkun hjá skíðafólki
Ég finn fyrir mikilli tilhlökkun hjá skíðafólki um allt land og það er orðið virkilega spennt að komast til Akureyrar á skíði, enda skapar nýja stólalyftan Hlíðarfjalli nýja stöðu á meðal skíðasvæða hérlendis.

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)
30. nóvemberber 2001:

Glæsilegt mannvirki að rísa
Þrátt fyrir að "Vetur konungur" hafi heldur hert tök sín að undanförnu halda framkvæmdir við nýju stólalyftuna í Hlíðarfjalli áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)

28.11.2001:

Troðnar skíðagöngubrautir í Kjarnaskógi

Skíðagöngubrautir í Kjarnaskógi hafa verið troðnar, en á mánudag var þar kominn nægur snjór til þess að fara á skíði.

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)

26.11.2001:

Margir heimsóttu VMÍ á Vetrarsport

Fjöldi fólks leit við í sýningarbás VMÍ á útilífssýningunni Vetrarsport 2002

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)

22.11.2001:

Stólalyftan að taka á sig mynd

Stólalyftan er nú  óðum að taka á sig endanlega mynd. Í vikunni var drifhjólinu komið á sinn stað.

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)

20.11.2001:

VMÍ á Vetrarsport 2002

Vetraríþróttamiðstöð Íslands tekur um komandi helgi þátt í útilífssýningunni Vetrarsport 2002.

Öll fréttin

line_horz.gif (472 bytes)

5.11.2001:

Vetrarlegt í Hlíðarfjalli

Nú er að verða vetrarlegt í Hlíðarfjalli en snjórinn tefur þó í engu framkvæmdir  við nýju stólalyftuna.

Öll fréttin

 

line_horz.gif (472 bytes)

24.10.2001:

Framkvæmdum við nýju lyftuna miðar vel

Framkvæmdum við nýju stólalyftuna í Hlíðarfjalli miðar vel áfram og í vikunni verður síðasta mastrið reist.

Öll fréttin

 

line_horz.gif (472 bytes)

20.10.2001:

Vetraríþróttabraut við VMA

Í undirbúningi er nám við Verkmenntaskólann á Akureyri  sem hugsað verður sérstaklega fyrir afreksfólk á skíðum.

Öll fréttin

 

line_horz.gif (472 bytes)
Eldri fréttir