Föstudaginn 19. október sl.var formlega opnuð einskonar íþróttamiðstöð að Glerárgötu 26 á Akureyri þar sem eru í nábýli skrifstofur Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) og Skíðasambands Íslands (SKÍ), en skrifstofurnar eru hlið við hlið á jarðhæð Glerárgötu 26. Fjöldi manns lögðu leið sína til að vera viðstaddir og heppnaðist þetta allt með besta móti. Fyrst var skrifað undir samning Akureyrarbæjar og SKÍ um samstarf vegna skrifstofunnar en síðan tóku til máls, Ólafur Jónsson, formaður Íþróttaráðs Akureyrar, Daníel Jakobsson formaður SKÍ, Ólafur E. Rafnsson forseti ÍSÍ, Þröstur Guðjónsson, formaður ÍBA og Margrét Baldvinsdóttir f.h. VMÍ. Ræðu Daníels má finna neðar á síðunni.
Frá 1. september 1999 hefur Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ, haft aðsetur í Glerárgötu 26, en nú hefur skrifstofa Íþróttabandalags Akureyrar flust úr Íþróttahöllinni á Akureyri í Glerárgötu og þá hefur þar verið opnuð skrifstofa Skíðasambands Íslands, í kjölfar ákvörðunar stjórnar Skíðasambandsins um flutning á höfuðstöðvum þess frá Reykjavík til Akureyrar.
Þórunn Sif Harðardóttir á Akureyri hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skíðasambandsins, en hún hefur lengi starfað innan skíðahreyfingarinnar, m.a. sem stjórnarmaður í Skíðasambandinu og formaður barna- og unglinganefndar Skíðafélags Akureyrar undangengin sex ár.
Akureyrarbær leggur skrifstofum ÍSÍ, ÍBA og SKÍ til húsnæðið að Glerárgötu 2, sem undirstrikar hversu mikilvægt bæjarfélagið telur að hafa þessar skrifstofur sýnilegar og öllum aðgengilegar. Undir sama þaki er einnig skrifstofa Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, en nú er unnið að nýjum samningi um hana milli Akureyrarbæjar og ríkisins. Vel fer á því að þessar þrjár skrifstofur séu í nábýli og hafi sameiginlega aðstöðu. Í því felst mikið hagræði og möguleikar á aukinni þjónustu við íþróttahreyfinguna á Akureyri og aðra bæjarbúa.
Flutningur skrifstofu Skíðasambands Íslands til Akureyrar markar tímamót því þetta er fyrsta sérsambandið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hefur höfuðstöðvar sínar utan Reykjavíkur. Auk þess að leggja Skíðasambandinu til húsnæðið að Glerárgötu 26 býður bæjarfélagið landsliðsmönnum Íslands á skíðum æfingaaðstöðu í Hlíðarfjalli og því má segja að þar með verði Hlíðarfjall „heimavöllur“ skíðalandsliðs Íslands. Jafnframt býðst landsliðsþjálfurum vinnuaðstaða í skíðahótelinu í Hlíðarfjalli.
Við formlega opnun skrifstofanna þriggja var einnig skrifað undir samning Akureyrarbæjar og Skíðasambandsins um afnot af skrifstofunni að Glerárgötu 26 og æfingaaðstöðu fyrir skíðalandsliðsfólk í Hlíðarfjalli.
Ræða formanns SKÍ fer hér á eftir.
Gleðilega hátíð.
Í dag fögnum við opnun þessar glæsilegu aðstöðu sem að Akureyrarbær hefur látið íþróttahreyfingunni í té. Við skíðamenn fögnum sérstaklega opnun skrifstofu Skíðasambandsins í nýjum heimabæ okkar hér á Akureyri.
Í framhaldi af því að stjórn SKÍ ákvað að flytja skrifstofu sína hingað hafa margir komið að máli við mig og spurt hvers vegna við séum að þessu?
Ég hef kosið að snúa spurningunni við og spurt, af hverju ættum við ekki að gera það. Hér er snjórinn, hér er mikil skíðamenning og í raun allt til alls fyrir okkur. Vissulega eru sambærilegar aðstæður til staðar á fleiri stöðum á landinu en ég held að erfitt sé að neita því að Akureyri hefur tekið vissa forystu í skíðamálum á landinu.
Snjóframleiðslukerfi, öflugar lyftur, kröftugt afreksstarf og almennur skíðaáhugi eru merki um þetta. Jafnframt er skíðavertíðin að verða mikilvægur hluti af ferðaþjónustu hér í bænum. Margir unglingar sækja einnig hingað í öflugar menntastofnanir samhliða skíðaiðkun þannig að hér er allt til alls. Einnig skiptir miklu sú staðreynd að hér í bæ hafa stjórnendur bæjarfélagsins sýnt vilja sinn, um bættan hag skíðaíþróttarinnar í verki, bæði með fjárframlögum en einnig með ákvörðun sem þessari að styðja við bakið á Skíðasambandinu svo að við getum flutt skrifstofuna hingað. Fyrir það vil ég þakka.
Einnig vil ég benda á það, ef mér leyfist að verða aðeins pólitískur, að það er að mínu mati mikið fagnaðarefni að eitt af sérsamböndum ÍSÍ hafi kosið af flytja höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík hingað út á land.
Ég held líka að það sé mikilvægt fyrir alla sem vilja stuðla að bættu mannlífi á landsbyggðinni að reyna eftir fremsta megni að flytja störf frá Reykjavík út á land, sérstaklega þegar að menn eru í jafn augljósri stöðu og við hjá SKÍ. Þó að flutningur Skíðasambandsins kalli ekki á jafn mörg störf og álver er þetta engu að síður stuðningsyfirlýsing frá okkur við alla landsbyggðina og lítð skerf í átt að fjölbreyttara atvinnulífi hér í bæ. Vona ég að þetta verði öðrum til eftirbreytni.
Akureyringar hafa nú sem heimabær
Skíðasambandsins nýju hlutverki að gegna. Nú eru þeir ekki bara eitt af félögum
innan SKÍ, nú eru þeir gestgjafar okkar hinna og þurfa að passa að öllum gestunum
líði eins og að þeir séu velkomnir. Ég segi þetta ekki vegna þess að slæmt hafi
verið að sækja Akureyringa heim fram að þessu. Þvert á móti. Ég segi
þetta til þess að árétta mikilvægi þess að í flutningi okkar hingað felast svo
mörg tækifæri sem hægt sé að nýta ef rétt er haldið á spilunum. Akureyringar
gegna lykilhlutverki í því sambandi. Hingað erum við komin og aðstöðuna og
krafta ykkar þurfum við að nýta. Við hin þurfum að sjálfsögðu að umgangast
ykkur sem gestgjafa af nærgætni og virðingu en allir þurfa að leggjast á eitt
svo að nýta megi þetta á sem bestan hátt.
Að lokum við ég segja það að ég er sannfærður um að það sé rétt ákvörðun um að
flytja sambandið hingað norður. Þó að ég sé ekki forlagatrúar finnst mér sú
staðreynd að úti sé 15 gráðu hiti merki um að við séum á réttum stað. Það
verður að viðurkennast að hiti (ekki kuldi) hefur fylgt okkur skíðamönnum s.l.
ár. Við erum stöðugt að flytja mót vegna snjóleysis og hita og kannski er þetta
merki um það að hitinn fylgi okkur á réttum dögum héðan í frá, því í dag er jú
ekkert mót.
Jafnframt finnst mér það skemmtileg tilviljun að mágur minn Sigurgeir Svavarsson, skíðafrömuður skuli hafa verið að rífa 47 ára gamalt þak í dag og rekast þá á gömul dagblöð full af skíðafréttum frá ÓL 1960, Þau höfðu verið notuð sem einangrun. Þar var stærsta fyrirsögnin “Frábær árangur Eysteins í Sqwaw-dal”. En þar er verið að vitna í árangur Eysteins Þórðarsonar sem varð í 12. sæti í þríkeppni á ÓL 1960 sem var sannarlega einn besti árangur Íslendings á ÓL fyrr og síðar.
Eysteinn er sem kunnugt föðurbróðir Kristins Svanbergssonar sem er maðurinn á bak við þá ákvörðun að við stöndum hér í dag. Gaman er líka að geta þess að Eysteinn hefur sett á laggirnar sjóð fyrir afreksskíðamenn sem úthlutað hefur verið úr þrjú s.l. ár. Það er jákvætt að vita til þess að menn eins og hann hugsi til okkar og styðji okkur með jafn rausnarlegum hætti og raun ber vitni.
Ég vil líka nota tækifærið til að þakka Akureyrarbæ og forsvarsmönnum hans og þá sérstaklega Kristin Svanbergssyni og Ólafi Jónssyni formanni íþróttaráðs fyrir sinn þátt í málinu.
Megi þetta verða SKÍ til framdráttar.
DJA