Fréttir: Bygging skautahallar
line_horz.gif (727 bytes)

wpe5.jpg (6607 bytes)

26. mars: 2001:
Skautahöllin á Akureyri var vígð 25. mars 2000. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson tók höllina formlega í notkun að viðstöddu fjölmenni Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 2000 var sett í Höllinni 4. mars kl. 17.00. 

Hér að neðan getur þú skoðað í máli og myndum byggingu Skautahallarinnar á Akureyri 1999 - 2000 

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

21. júlí 1999
Framkvæmdir hafnar við byggingu skautahallar á Akureyri. Byrjað að steypa upp hliðarvegg að austan. Myndin sýnir stöðu á byggingarstað 21. júlí 1999.
20. ágúst 1999
Byrjað að steypa upp veggi búningsklefanna sem eru við vesturgafl skautahallarinnar. Staðan á byggingarstað 20. ágúst 1999.
3. september 1999.
3. september 1999. Efni í skautahöllina flutt á vinnusvæðið. Þetta eru límtrésbitar og klæðning sem kemur frá Finnlandi.

wpe5.jpg (6848 bytes)
17. september 1999. Verið að setja lagnir í loft á búningsklefunum.
Þarna ofaná verða áhorfendapallar.

 

wpeA.jpg (6347 bytes)
16. oktober 1999. Fyrsti þakbitinn á skautahöllinni settur upp
wpe3.jpg (7216 bytes)
18. oktober 1999. Haldið áfram að setja upp þakbita og uppistöður.

18. október 1999. Haldið áfram að setja þakbita. Þverbönd sett á hliðar.
wpe7.jpg (5676 bytes)
20. oktober 1999. Fyrstu þakklæðningareiningarnar settar á bitana
wpe4.jpg (12694 bytes)
20. október 1999. Skautahöllin er  staðsett nálægt Leirutjörn í innbæ Akureyrar.
wpeB.jpg (5834 bytes)
Nóvember 1999. Unnið við skautahöllina í fögru vetrarveðri..
.
wpe8.jpg (7667 bytes)
Þakklæðningin er sett á í stórum einingum.
wpe9.jpg (5976 bytes)
25. október 1999. Búið að setja þakklæðningu á 3 fyrstu bilin og
byrjaðá næstu þrem.
wpeB.jpg (7690 bytes)
28. október 1999. Séð til norðurs. Höllin farin að taka á sig form. Mesta hæð undir loft er 13.5 m.
wpeC.jpg (5395 bytes)
28. október 1999. Verið að hífa upp 8. þakbitann. 600
áhorfendasvæði verða uppá búningsklefunum, t.h. á þessari mynd.
wpe4.jpg (4251 bytes)
Búið að setja þakið á Skautahöllina
wpe5.jpg (4340 bytes)
11. nóvember 1999. Unnið við að setja upp klæðningu á austurgaflinn.
wpe6.jpg (4258 bytes)
16. nóvember 1999. Lektur undir klæðningu settar á suðurstafninn.
wpe7.jpg (3456 bytes)
17. nóvember 1999. Norðurstafninn klæddur.
wpeC.jpg (7709 bytes)
10. desember 1999. Mikil veisla var þegar húsið var orðið fokhelt.
wpeD.jpg (6607 bytes)
23. desember 1999. Á myndinni sést útbygging Skautahallarinnar að norðan. Þar er aðalingangur á neðri hæð en á efri hæð eru skrifstofur og félagsaðstaða Skautafélags Akureyrar.
wpeE.jpg (6669 bytes)
23. desember 1999. Verið að undirbúa skautasvellið til notkunar.
wpeF.jpg (4241 bytes)
23. desember 1999. Starfsmenn Skautahallarinnar að undirbúa svellið fyrir fyrstu æfingu skautamanna sem verður 24. desember kl. 11.00.
F.v. Sveinn Björnsson, Jón Hansen og Clark McCormick, sem jafnframt er þjálfari í   íshokky hjá  Skautafélagi Akureyrar

line_horz.gif (727 bytes)