Skóflustunga tekin að snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli
Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, tók fyrstu skóflustunguna að nýju snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í hádeginu í dag, en um er að ræða fyrsta snjóframleiðslukerfi sem sett er upp á Íslandi. Þar sem Þórarinn stakk niður skóflunni mun dælustöð fyrir kerfið rísa.
Í framhaldinu verður hafist handa við lagningu veitukerfis
um skíðasvæðið sem verður um 2.600 metrar að lengd. Á
svæðinu verða starfræktar sjö snjóbyssur sem hægt verður að tengja við 20 til 30
stúta sem staðsettir verða með 50 metra millibili á kerfinu.
Um kerfið verður hægt að dæla 80 sekúndulítrum af vatni sem fást úr 18.500 m3 tjörn sem grafin verður nokkru sunnan við skíðasvæðið. Búist er við því að framkvæmdum ljúki um miðjan október og hefst þá snjóframleiðsla um leið og aðstæður leyfa, en til að búa til snjóinn þarf að vera í það minnsta tveggja gráðu frost en því meiri sem kuldinn er því meiri verður framleiðslugetan.
Fjárhagsáætlun hljóðar upp á 110 miljónir króna og að sögn Þórarins er verkið á áætlun, en stefnt er að því að opna skíðasvæðið eigi síðar en 3. desember nk. Hann sagði jafnframt að hann teldi að um mjög brýna framkvæmd væri að ræða, ekki aðeins fyrir skíðafólk á Akureyri heldur líka ferðamannaþjónustuna á Akureyri sem nú getur selt skíðaferðir til Akureyrar af meira öryggi en áður.