7. júlí 2005
Snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli
Undirbúningur að snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli er hafinn og er reiknað með að framkvæmdir geti hafist í kringum tíunda ágúst nk. Snjóframleiðslukerfið mun liggja meðfram Fjarkanum og upp í stromp á milli Norðurbakka og Strompbrekku, einnig verður Hólabrautin með snjóframleiðslu.
Kostnaðaráætlun við verkið hljóðar upp á um 100 milljónir króna, en Vetraríþróttamiðstöð Íslands fjármagnar kaupin á snjóframleiðslukerfinu. Rekstarkostnaður fer eftir notkun, en veitingahúsið Greifinn, KEA og Höldur ætla að taka þátt í rekstrarkostnaðinum næstu fimm árin.
Smellið hér til að skoða yfirlitsmynd af snjóframleiðslukerfinu í Hlíðarfjalli á pdf-formi.