15. mars 2005

Skíðaiðkun og útivera fyrir fatlaða

 

Sérstakt skíða- og útivistarnámskeið fyrir fatlaða verður haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri 14. til 17. apríl nk. Verkefnið er samstarfsverkefni Íþróttasambands Fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands.  Fjórir sérþjálfaðir leiðbeinendur frá Aspen í Colorado í Bandaríkjunum verða í Hlíðarfjalli þessa daga til að stýra námskeiðinu og kynna nýjungar sem lúta að vetraríþróttum og alhliða útiveru fyrir fatlaða. Allir þeir sem vilja njóta þess að vera úti og efla þrek sitt yfir vetrartímann finna eitthvað við sitt hæfi á þessu námskeiði, sem er meðal annars ætlað fyrir mænuskaðaða, fjölfatlaða, þroskahefta, hreyfihamlaða, sjónskerta og blinda.Námskeiðið er bæði verklegt og félagslegt. Við hvetjum fatlaða á sambýlum, leiðbeinendur, íþróttakennara og áhugafólk um útiveru fyrir fatlaða til að taka þátt.

Námskeiðsgjald er kr. 3.500. Innifalið er námskeiðsgjald,  lyftumiðar og sérhæfður búnaður.

 

Dagskrá verður send út 29. mars nk. Skráning er til 8. apríl 2005.

 

Nánari upplýsingar veita:

 

Anna Karolína Vilhjálmsdóttir:           Íþróttasambandi fatlaðra                     514-4080                 annak@isisport.is

Þröstur Guðjónsson:                            Vetraríþróttamiðstöð Íslands              863-1147                 sporri@internet.is

Hörður Elís Finnbogason:                   Skíðasvæðinu  Hlíðarfjalli                     820-1658                 hlidarfjall@hlidarfjall.is