Framkvæmdir við snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli
Myndir teknar 11. ágúst 2005
Hermann Sigtryggsson tók myndirnar
(smelltu á myndirnar til að fá þær stærri)

 

 

Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, tekur fyrstu skóflustunguna fyrir dælustöð snjógerðarkerfisins 

Starfsmenn G. Hjálmarssonar ásamt starfsmönnum Hlíðarfjalls, fylgdust ábúðarfullir með er fyrsta skóflustungan var tekin.

 

 

Kristinn H. Svanbergsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, bendir Dagbjarti Halldórssyni, gjaldkera Skíðafélags Akureyrar, á hvar verið sé að grafa fyrir uppistöðulóni fyrir snjógerðarkerfið

 

 

Kunnuglegt fólk úr skíðabransanum: Margrét Baldvinsdóttir, Ívar Sigmundsson og Gunnar Reynisson

 

Guðmundur Karl,  forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, ásamt Mikael Manhard, austurrískum ráðgjafa í snjógerðarmálum, Kristni íþróttafulltrúa og Árni Sveini Sigurðsson, verkfræðingi frá Verkfræðistofu Norðurlands. Kona Mikaels, frú Doris Manhard, er lengst til hægri

F.v. Jónas Vigfússon, Agnar Árnason, Dagný Harðardóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Jón Birgir Gunnlaugsson, Sigríður Stefánsdóttir og Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar, gæða sér á veitingum sem fram voru bornar að skóflustungu lokinni

Guðmundur Karl, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjallsf og skíðakonan Margrét Baldvinsdóttir ræðast við

30 tonna jarðýta byrjaði strax að ýta fyrir dælustöðinni sem staðsett verður rétt suðaustan við forstoð Fjarkans