Framkvæmdir við snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli
Myndir teknar 9. nóvember 2005
Hermann Sigtryggsson tók myndirnar
(smelltu á myndirnar til að fá þær stærri)

 

 

 

Myndin tekin inni í dælustöðinni þar sem verið er að ljúka við rafmagnstengingar. Tveir kraftmiklir mótorar eru í dælustöðinni og sést annar þeirra á þessari mynd. Þeir eru 315 kw hvor. Geta má þess að nýja rafmagnsstöðin í Glerárgili er 296 kw .

Myndin tekin inni í dælustöðinni þar sem verið er að ljúka við rafmagnstengingar. Tveir kraftmiklir mótorar eru í dælustöðinni og sést annar þeirra á þessari mynd. Þeir eru 315 kw hvor. Geta má þess að nýja rafmagnsstöðin í Glerárgili er 296 kw . 

 

 

Hér er verið að setja saman bráðabyrðarörin frá miðlunartanknum, sem tengjast allmiklu sverara röri sem liggur frá uppistöðulóninu í dælustöð.

 

 

Séð yfir framkvæmdasvæðið þar sem unnið er við dælustöð snjógerðarkerfisins í Hlíðarfjalli. Til vinstri. er verið að grafa fyrir 35 rúmmetra stáltank sem notaður verður til bráðabyrgða sem miðlunartankur fyrir vatn úr lækjum í grenndinni en ekki tókst að ljúka við gerð uppistöðulóns vegna veðurs. Geta má þess að uppistöðulónið verður 18 þúsund rúmmetrar.

     

  

 

Mynd af snjógerðarvélunum, en þær eru sjö talsins og verða staðsettar meðfram vatnslögninni og tengjast henni með sérstökum útbúnaði. Þær eru færanlegar.

 

 

Unnið við síðustu tengingar við dælustöðina á leiðslum sem liggja upp í fjallið. Dælustöðin er undir planinu SA við Fjarkann.

 

 

Hér er verið að setja niður miðlunartankinn, sem er um 100 m. vestan við dælustöðina og tengist hann aðallögninni úr uppistöðulóninu um 50 metrum vestan við dæluhúsið.