Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Bautamótið

Opna Bautamótið í tölti fór fram í Skautahöllinni á Akureyri 20. Febrúar. Mikil þátttaka var venju samkvæmt og voru 71 hross skráð til leiks. Það var mál manna að aldrei hafi verið riðin jafnsterk úrslit á þessu móti og hrein unun á að horfa.  Þorsteinn Björnsson á Ögra frá Hólum átti frábæra sýningu og brekkan var sannarlega hans enda hefur líklega heyrst í næstu bæjarfélög fagnaðarlætin en dyggur stuðningshópur hans lét ekki sitt eftir liggja.  Framúrskarandi hross þarna í A-úrslitnum, reiðmennskan í algjörum sérflokki og á meðal reyndari hesta í B-úrslitum komu þar yngri hross sem vöktu verulega athygli.  Prúðir knapar og framúrskarandi hross einkenndu þetta níunda Bautamót í tölti.  

 

Sölvi Sigurðarson reið þremur hestum í forkeppninni og kom þeim öllum í úrslit. Hann ákvað að ríða Glað frá Gund í A-úrslitunum en einnig náðu í úrslit þeir Straumur frá Enni með 6,60 og Gustur frá Halldórsstöðum með 6,53 

Gefendur vinninga í áhorfendahappdrættinu voru Bautinn, Fákasport og eigendur stóðhestanna Eldjáns frá Ytri-Brennihóli og Þorra frá Möðrufelli.

 

A-úrslit 

1. Þorsteinn Björnsson - Ögri frá Hólum 7,00/7,83 

2. Ísólfur Líndal Þórisson - Kraftur frá Efri-Þverá 7,17/7,75 

3. Barbara Wenzl - Dalur frá Háleggsstöðum 6,90/7,46 

4. Sölvi Sigurðarson - Glaður frá Grund 6,67/7,13 

5. Magnús B. Magnússon - Farsæll frá Íbishóli 6,53/6,83 

B-úrslit 

5. Magnús B. Magnússon - Farsæll frá Íbishóli 6,53/6,71 

6. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir - Von frá Árgerði 6,53/6,54 

7. Þorbjörn Hr. Matthíasson - Týr frá Litla-Dal 6,53/6,50 

8. Nikólína Rúnarsdóttir - Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,47/6,29 

9. Gísli Steinþórsson - Skrugga frá Kýrholti 6,47/6,08 




empty

Mynd augnabliksins

thtr6527.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2539

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn