Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Bigjump Brettamót

Laugardaginn 27. febrúar verður haldið brettamót í Hlíðarfjalli.  Mæting fyrir skráningu er 10:30 og hefst mótið klukkan 11:00

Þetta verður Bigjump mót með einum kicker/palli, pallurinn verður tvískiptur svo flestir ættu að geta tekið þátt.

Verða tveir aldursflokkar, 16 ára og yngri og 17 ára og eldri.  Einnig verður reynt að hafa stelpu flokk ef að næg þátttaka næst þannig að sem flestar eru hvattar til að mæta.

Ef næg þátttaka verður þá fær hver keppandi þrjú stökk og munu tvö bestu gilda.  Fimm bestu úr hverjum hóp fara svo áfram í úrslit og fá þeir tvö stökk til að sanna sig og besta stökkið gildir.

Brettafélag Akureyrar vill með þessu sameina brettafólk og hafa gaman af.  Ef veður verður leiðinlegt þá verður þessu bara breytt í 'session' og allir fá að leika sér eins og þeir vilja.

ATH. Kostar ekkert að vera með!



empty

Mynd augnabliksins

thtr5154.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2539

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn