Fjölskylduhelgi SA
mánudagur 22.febrúar 2010 - Lestrar 23
Um helgina fór fram fjölskylduhelgi Skautafélags Akureyrar og var þátttakan mjög góð.
Á föstudeginum var Skautadiskó og var ókeypis aðgangur á það. Fjöldinn allur mætti og var mikið líf og fjör í höllinni.
Alla helgina var frítt inn og frí skautaleiga og auk þess fengu allir sem fóru á svellið frítt kaffi eða kakó. Fjöldinn allur mætti í höllina yfir helgina og nutu menn gestrisni og veitinga Skautafélagsins.

