Íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi
miðvikudagur 03.mars 2010 - Lestrar 22
Mikil framför í skautaíþróttinni hér á landi.
Íslandsmót barna- og unglinga í listhlaupi á skautum fór fram um helgina. 74
skautarar tóku þátt í mótinu frá þremur félögum Birninum, Skautafélagi
Reykjavíkur og Skautafélagi Akureyrar tóku þátt, en keppt var í 11 flokkum.
Sjá má augljósar framfarir í heildina meðal allra félaga og íslenskir
skautarar greinilega á hraðri uppleið, en íþróttin er mjög ung.
Skautasamband Íslands fagnaði um helgina 15.ára afmæli sínu en einungis 10
ár eru frá því að skautahöll var reist á Akureyri.. Skautafélag Reykjavíkur
hampaði flestum gullmedalíum á mótinu, en fulltrúar Listhlaupadeildar
Skautafélags Akureyrar náðu hins vegar ágætum árangri og tryggður sér 7
verðlaun af þeim 17 sem félagið gat náð í.