Vetraríţróttamiđstöđ Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Kvennamót í íshokkí

Kvennamótinu lauk á laugardagskvöldið á leik Hákarlanna og Snákanna en það var sjötti og síðasti leikur mótsins. Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og segja má að mjög vel hafi tekist með að raða niður í lið, því öll liðin þrjú voru jöfn að styrkleika. Leikmönnum úr öllum liðum og á öllum aldri var raðað saman í þrjár línur í hverju liði og séð var til þess að jafnar línur mættust með reglubundnum skiptingum.

Þetta leikfyrirkomulag einnig haft að leiðarljósi á kvennamóti fyrr í vetur sem haldið var í Egilshöllinni og hefur það gefið góða raun og óhætt að segja að þessi móti sýni vel bæði breiddina og fjöldann í kvennahokkíinu hérlendis. Þessi mót eru kærkomin viðbót við annars heldur einsleita leikjaskrá vetrarins og upplagt að slá aðeins á létta strengi áður en átök úrslitakeppninar í MFL kvenna hefjst í byrjun næsta mánaðar.

Frétt tekin af www.sasport.is/hockey



empty

Mynd augnabliksins

thtr2295.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2539

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn