Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Opnunarhátíð


Dagskrá opnunarhátíðar sem fer fram í skautahöll Akureyrar þann sjötta febrúar.


Opnunarhátið – kl. 16:00
Vetraríþróttahátíðin verður sett með formlegum hætti með skrúðgöngu fulltrúa vetraríþróttagreina sem ganga munu inn á ísinn fylktu liði.  Eftir nokkur stutt ávörp verður kynning íslensku Ólympíuförunum sem munu heiðra hátíðina með nærveru sinni sem síðan verður fylgt eftir með sýningu frá Listhlaupadeildinni sem ljúka mun með formlegri setningu hátíðarinnar.  Að þessu loknu verður boðið upp á veitingar í skautahöllinni sem einmitt fagna 10 ára afmæli sínu um þessar mundir.  Verður þetta í alla staði skemmtilegur viðburður sem allir eru velkomnir á.

Íshokkíleikur – kl. 17:15
Strax á eftir Opnunarhátíðinni mun hefjast fyrsti viðburður VH2010, íshokkíleikur í karlaflokki á milli Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur og gefst gestum opnunarhátíðarinnar frábært tækifæri til að kynna sér þessa hröðu og skemmtilegu hópíþrótt.

Strax á eftir karlaleiknum mætast meistaraflokkar kvennaliðs SA og Bjarnarins, en konum í íshokkí hefur fjölgað hratt á síðustu árum og full ástæða til að láta ekki þennan leik fram hjá sér fara.




empty

Mynd augnabliksins

thtr6046.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2539

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn