SA íslandsmeistari í íshokkí karla
fimmtudagur 11.mars 2010 - Lestrar 10
Fimmti og seinasti úrsleitaleikurinn um íslandsmeistaratitillinn í íshokkí karla fór fram á Akureyri miðvikudaginn 10. mars.
SA og Björninn voru að keppa um titilinn og náði Björninn að skora fyrsta markið en þrátt fyrir það náði SA 6-2 sigri. Hið reynslumikla lið SA bar því sigurorð af ungum og efnilegum leikmönnum Bjarnarins, SA stjórnaði leiknum nánast frá upphafi til enda og virtist leikaðferð þeirra ganga að öllu leyti upp. Þeir héldu pekkinum vel og pressuðu leikmenn andstæðinganna stíft.


