Skíðaganga Þórunnar Hyrnu
miðvikudagur 03.mars 2010 - Lestrar 22
Kvennaskíðagangan - Í spor Þórunnar Hyrnu - var haldin í þriðja sinn síðastliðinn
laugardag. Um 100 konur gengur í fínu veðri, snjókomu og logni, ýmist 3,5 eða 7,0
km. Að venju var boðið upp á léttar veitingar á leiðinni og þegar í mark var komið.
Fjöldi fyrirtækja styrkti gönguna með einum eða öðrum hætti og útdráttarverðlaunin
voru fjölmörg. Þátttakendur voru hvattir til að mæta í búningum og mátti sjá konur
ganga í pilsum, ýmiskonar ullarfötum og með hárkollur og hatta. Gangan tókst vel til
í alla staði og geta konur geta strax farið að hlakka til næstu göngu sem verður
haldin að ári.