Sýning á Glerártorgi
þriðjudagur 23.mars 2010 - Lestrar 29
Fyrirhuguð er sýning á Glerártorgi um páskana í tengslum við vetraríþróttarhátíð ÍSÍ. Settur verður pallur með gínum sem klæðast munu fatnaði ólympíufara Íslands frá mismunandi tímum. Sýningin mun standa yfir í rúma viku. Nánari upplýsingar verða settar hér inná síðuna innan skamms.
Þeir sem eiga eða vita um fatnað ólympíufara okkar Íslendinga mega gjarnan hafa samband við Viðar hjá ÍSÍ í sima 8631399 eða á vidar@isi.is

