Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Telemarkfestival

Helgina 12.-14. mars var haldið vel heppnað Telemarkfestival í Hlíðarfjalli en þetta var í 10 skipti sem það fer fram. 

Þrátt fyrir að snjóalög hafi stundum verið þykkari og veðurspá girnilegri þá var síst minni stemmning þetta árið en fyrri ár.
Á föstudagskvöldinu var skíðað í fljóðljósum en Hlíðarfjallsmenn voru svo elskulegir að hafa opið lengur fyrir okkur.

Á laugardagsmorgninum var hópur vaskra manna mættur upp í fjall til að búa til braut. Fremstur meðal jafningja var þar Karl Ingólfsson sem fór fram á að nýstárlegar aðferðir væru notaðar við lagninguna.
Um hádegisbil fóru prúðbúnir gestir Telemarkfestivalsins að streyma upp í fjall.
Var það mál manna að metnaðurinn í búningum aukist með hverju árinu og mátti sjá hópa af fegurðardrottningum, drakúla, trúða, týrólabúa auk hins mjólkurhristingsdrekkandi Dude, þela um brekkurnar í Hlíðarfjalli.

Samhliðasvigkeppnin hófst kl. 13 og kepptu hátt í 40 manns. Ræsir var Valgeir Brekkusnigill en Karl sá um að para saman keppendur í brautina. Eftir æsispennandi keppni í hálli brautinni stóðu uppi sem sigurvegarar hjónaleysin Maggí og Góli. Eru þau vel að titlinum komin enda án efa með einbeittustu telemörkurum landsins.

Glerár-búar buðu í aprés ski stemmningu að loknum vel lukkuðum skíðadegi og mátti þar sjá fjölda fólks dilla sér við ekta austurrískt aprés ski popp að hætti DJ Ötzi. Saltkringlur og mjöður af ýmsu tagi runnu ljúflega niður.

Ekki gafst langur tími til afslöppunar eftir aprés ski þar sem um kvöldið fór fram Telemarkhóf í Íslandsbænum á Hrafnagili. Þrátt fyrir mikla hörku og eftirfylgni í skráningum fyrir veisluna bættust við 20 manns á lokasprettinum. Um 100 manns mættu því í veisluna og má því segja að setið hafi verið ansi þétt í litla torfbænum.
Skíðafólkið hafði ekkert á móti því, eins og einhver sagði þá er þetta fólk flest vant því að hýrast í litlum blautum fjallaskálum og tjöldum. Þessi nánd jók svo sannarlega á stemmningunni og að loknu borðhaldi og eftirminnilegri verðlaunaafhendingu brast á með dansi.

Þessi viðburður er sannarlega einstakur og fjöldi fólks úr öllum áttum leggur hönd á plóginn við að gera helgina sem magnaðasta.

Úrslit og frekari upplýsingar má finna á hlekknum hér fyrir neðan.

Frétt tekin af http://www.isalp.is/greinar/7-olaestar-greinar/1071-telemarkfestivali-2010.html



empty

Mynd augnabliksins

thtr3733.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2539

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn