Vetraríţróttamiđstöđ Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

UFA vetrarhlaup

Fimmta vetrarhlaup vetrarins fór fram laugardaginn 27. febrúar.  Þátttakendur voru heldur færri en í fyrri hlaupum vetrarins og hefur veður og færð trúlega átt einhvern þátt í því.  Þrettán hlauparar mættu til leiks og hlupu hringinn í fínasta veðri en heldur leiðinlegu færi, mikill snjór á göngustígum og göturnar hálar.  Bjarki Friðbergsson kom fyrstu í mark á 43:04 og fast á hæla honum kom Rannveig Oddsdóttir á 43:12.  Halldór Arinbjarnarson var annar karla á 44:24 og Einar Ingimundarson þriðji á 45:39. Sigríður Einarsdóttir var önnur kvenna á 48:57 og Björk Sigurðardóttir þriðja á 51:42.  Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni.


empty

Mynd augnabliksins

thtr1821.jpg

Teljari

Í dag: 2
Samtals: 1977

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn