Úrslitaleikur í íshokkí SA-Björninn
miðvikudagur 10.mars 2010 - Lestrar 20
Úrslitaleikur í Skautahöllinni á Akureyri á miðvikud. 10. mars kl. 19,00
Nú er komið að 5. og síðasta leik í úrslitalotunni þetta tímabilið. 4 leikir búnir og liðin hafa skipst á að vinna svo staðan í einvíginu er 2 : 2. Úrslit undangenginna leikja sýna að liðin, þótt ólík séu að samsetningu, eru gríðarlega jöfn. Margir hafa talað um það undanfarið að Bjarnarmenn séu betur í stakk búnir hvað líkamlegt þol áhrærir og fjölda en SA-drengir hafi sín megin fleiri ár og meiri reynslu.
Búist er við gífurlega spennandi leik og hvetjum við alla til að mæta.

