Vel heppnuð Vetraríþróttarhátíð
Nú er vetraríþróttarhátíð ÍSÍ á Akureyri langt komin. Skipulagðri dagskrá lauk í raun 21. mars en þó eru eftir 2 atburðir sem tengjast á hátíðinni. Þeir eru: Sýning á Glerártorgi þar sem sýnd verða föt og búnaður íslenskra ólympíufara í gegnum tíðina og svo Andrésar Andar leikarnir.
Fjölmargir atburðir hafa verið á dagskrá VH2010 eða hátt í 30 atburðir. Dagskrárliðir voru m.a. nokkur skíðamót, skíðanámskeið fyrir fatlaða, innanhús skíðagöngumót, snjóspyrnur á vélsléðum, Vetrarsport sýning á allskonar búnaði og tækjum, ískross, hestaíþróttamót, vetrarhlaup, bretta bigjump mót, kvennaganga Þórunnar Hyrnu, kynning og leikir í krullu, skemmtanir í skautahöllinni, o.fl.
Viljum við þakka öllum sem hafa komið að hátíðinni kærlega fyrir þeirra framlag og vel heppnaða hátið, þó hún sé ekki búin enn.

