Vetraríþróttahátíð ÍSÍ er nú haldin á Akureyri í fimmta sinn. Fyrsta hátíðin var haldin árið
1970, var þá þriggja daga hátið og alfarið í höndum heimamanna en ÍSÍ stóð straum að henni fjárhagslega. Sama
fyrirkomulag var árið 1980 og árið 1990 varð sú breyting á að hátíðin var lengd í fjóra daga. Árið 2000 komu
heimaaðilar komu einnig að fjárhagslega baklandinu auk ÍSÍ og dagskráin var þá færð á sex helgar. Samhliða því
jókst fjölbreytnin í viðburðum verulega. Sama fyrirkomulag er á hátíðinni í ár, fjöldi glæsilegra viðburða er
bæði um helgar og í miðri viku. Nánari tímasetningar og fyrirkomulag viðburða má finna á dagskrá
vh2010 en að framkvæmd hennar koma ÍSÍ, ÍBA, VMÍ og Akureyrarbær.


